Back to All Events

Klassískar perlur, þrjú minni og frábært ferðalag út í geim

  • Breiðholtskirkja Þangbakki 5 Reykjavík, Reykjavíkurborg, 109 Iceland (map)

Haydn er sannkallaður faðir strengjakvartettsins og átti stóran þátt í því að færa formið upp á annað plan. Eitt aðaleinkenni á strengjakvartettum hans er að það er eins og hljóðfærin séu í samtali við hvort annað. Lævirkjakvartett Haydn er þekktur fyrir lagræna fegurð og hugvitssemi. Hann dregur nafn sitt af stefi sem 1.fiðla spilar og minnir auðheyrilega á Lævirkjann. Þetta er leikandi, lifandi og léttur kvartett sem kafar þó djúpt á köflum. Verkið er eitt af öndvegisverkum strengjabókmenntanna. 

Gylfi Garðarsson er fæddur 1956 og lærði gítarleik og tónsmíðar í Tónlistarskóla Reykjavíkur þaðan sem hann útskrifaðist árið 1987. Hann er einn af stofnendum SÍTÓN, Samband íslenskra tónbókaútgefenda og hefur starfað fyrir samtökin frá stofnun. Hann hefur samið tónlist alla tíð en undanfarin ár hefur hann hefur hann verið að yfirfara verk sín, hljóðrita og gefa þau út. Srengjakvartettinn Spúttnik hljóðritaði einmitt verkið „Þrjú minni“ sem má nú finna á streymisveitunni SoundCloud. „Þrjú minni“ er samið árið 1985 og Gylfi leikur sér með minni þriggja tónskálda og semur sína eigin tónlist út frá þeirra stíl. 1. kaflinn er saminn í anda Anton Webern, 2. kaflinn J.S. Bach og 3. kaflinn Béla Bartók. Þó verkið hafi verið hljóðritað hefur það aldrei verið flutt áður á tónleikum á Íslandi.

Verkið „57 & Sputnik“ var samið í janúar 2024 í þakkarskyni fyrir framlag Strengjakvartettsins Spúttnik við upptökurnar í lok 2024. Með hliðsjón af nafni kvartettsins, Spúttnik, vísar verkið á gamansaman hátt til geimskots og hljóðmerkis (píps) fyrsta geimfars mannkynssögunnar í bland við stefbrot þekktra bandarískra og rússneskra sönglaga þess tíma (1957). Tónverkið má telja nokkuð skýrt dæmi um hermitónlist fyrir strengjakvartett. Verkið hefur aldrei verið flutt né hljóðritað svo þetta er einnig frumflutningur á Íslandi. 

Gylfi verður 70 ára á árinu og hér heiðrar kvartettinn tónskáldið með frumflutningi á tveimur verka hans. 

Tékkneska tónskáldið Antonín Dvorak semur Ameríkukvartett sinn árið 1893 en þá hefur hann dvalið í um það bil eitt ár í Bandaríkjunum. Innblásturinn kemur frá sálmum blökkumanna og tónlist frumbyggja Ameríku. Mikið er um pentatóníska skala sem gefa tónlistinni þjóðlagablæ. Einnig má greina tékkneskar rætur og nostalgíu til heimalandsins sem blandast saman við taktfasta orku nýja heimsins. Það er vel við hæfi að flytja verk eftir Haydn og Dvorak á sömu tónleikum því eftir að hafa samið þetta verk sagði Dvorak: „…ég vildi semja tónverk sem væri bæði lagrænt og hreinskiptið, minn kæri lærifaðir Haydn birtist aftur og aftur fyrir augum mér og þess vegna varð allt svo auðvelt. Sem betur fer.“

Efnisskrá


Joseph Haydn (1732 – 1809)

Lævirkja-kvartettinn 

Strengjakvartett í D dúr op. 64 nr. 5 

I.   Allegro Moderato

III. Minuet and trio- Allegretto 


Gylfi Garðarsson (1956)

Þrjú minni 

(1985) 

I. Kanon

II. Aria

III. Barbaro


Gylfi Garðarsson

57 & Sputnik

(2024)


Antonín Dvořák (1841-1904) 

Ameríkukvartettinn

Strengjakvartett í F dúr op. 96: 

I. Allegro ma non troppo

II. Lento

Strengjakvartettinn Spúttnik

Strengjakvartettinn Spúttnik var stofnaður árið 2018. Meðlimir eru fiðluleikararnir Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir og Diljá Sigursveinsdóttir, víóluleikarinn Vigdís Másdóttir og sellóleikarinn Gréta Rún Snorradóttir. Kvartettinn hefur komið fram við ýmis tækifæri frá stofnun hans m.a. á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju, listahátíðinni Ljósanótt, í Hljómahöll í Reykjanesbæ, í menningarhúsinu Hannesarholti, á Sumartónleikum í Listasafni Sigurjóns, á Sumartónleikum í Gljúfrasteini, á tónleikum í Hofi á vegum Tónlistarfélags Akureyrar og á tónlistarhátíðinni Berjadagar í Ólafsfirði. Frá stofnun hefur kvartettinn verið í nánu samstarfi við fiðlusmiðinn Jón Marinó Jónsson og leikið við hin ýmsu tækifæri á hljóðfæri hans og m.a. var verkefninu úthlutað styrk úr Tónlistarsjóði til þess að halda tónleika í fangelsunum Litla-Hrauni og Hólmsheiði. Árið 2024 var hljóðritað verk eftir Gylfa Garðarsson (1956) „Þrjú minni“ í flutningi strengjakvartettsins Spúttnik. Meðlimir eru allir virkir í íslensku tónlistarlífi og starfa við hljóðfærakennslu og tónlistarflutning.

Previous
Previous
August 22

Dætur Evu - systur Maríu

Next
Next
October 17

Dúó Stemma brokkar