Back to All Events

Dúó Stemma brokkar

  • Breiðholtskirkja Þangbakki 5 Reykjavík, Reykjavíkurborg, 109 Iceland (map)

Fjölskyldutónleikar fyrir börn á öllum aldri

Dúó Stemma leikur sér á á óhefðbundin hátt með íslensk þjóðlög frá tímum barokkmeistaranna. Þau munu m.a. spila á upprunaleg íslensk “barokkhljóðfæri” eins og hrossakjálka, steina og skeljar og umbreyta tónleikunum  í ævintýri, þar sem tónlist, sögur, leikhústjáning og ótrúlegt safn hefðbundinna og heimagerðra hljóðfæra blandast saman.

Dúó Stemma

Dúó Stemma samanstendur af víóluleikaranum Herdísi Önnu Jónsdóttur og slagverksleikaranum Steef van Oosterhout, sem hafa bæði leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands til fjölda ára.

Dúó Stemma er þekkt fyrir sköpunargáfu sína og lifandi sviðsframkomu og býður upp á þætti sem höfða til hlustenda á öllum aldri. Efnisskrá þeirra spannar allt frá íslenskum þjóðlögum til samtímaverka og flutningurinn er bæði hljóðkönnun og leikhúsupplifun. Dúóið hefur komið víða fram bæð á Íslandi og erlendis og flutt fjölbreytta efnisskrá, meðal annars nýjar tónsmíðar, samdar sérstaklega fyrir þau Herdísi Önnu og Steef. Þau leggja áherslu á að kynna börnum heim tónlistarinnar. Þau hafa haldið tónleika og fræðslusýningar í skólum, leikskólum, tónleikahúsum og hátíðum um allt land, sem og á Færeyjum, Grænlandi, Hollandi og Þýskalandi. Í viðurkenningu á mikilvægu framlagi sínu til barnamenningar á Íslandi fengu þau hin virtu IBBY-verðalaun árið 2008.

Með einstakri blöndu af snilld, forvitni og leikgleði skapar Dúó Stemma eftirminnilegar tónlistarupplifanir sem hvetja áhorfendur til að uppgötva með því að leggja við hlustir og nota ímyndunaraflið.

Previous
Previous
September 26

Klassískar perlur, þrjú minni og frábært ferðalag út í geim

Next
Next
November 21

Tónar úr Norðri