Norræn Veisla
Hljóma mun sjaldheyrð þjóðlagaskotin svíta eftir Árna Björnsson, ásamt frægari verkum Griegs, Nielsen og hinni nýklassísku serenöðu Wiréns.
Lítil svíta (Kleine Suite) eftir Carl Nielsen (1865 - 1931), frumflutt 1888, er eitt af fyrstu verkunum sem hann samdi. Hann var 22 ára, enn að læra tónsmíðar. Verkið varð strax - og er enn - býsna vinsælt og ruddi veg tónskáldsins, en Nielsen átti eftir að verða þekktasta tónskáld Danmerkur. Nielsen er sérstaklega þekktur fyrir sex sinfóníur sínar, blásarakvintett sinn og konserta fyrir fiðlu, flautu og klarinett.
Árni Björnsson (1905 - 1995) fæddist og ólst upp á Lóni í Kelduhverfi á Norðurlandi og hafði starfað þar í sveit sem sjálflærður organisti í 6 ár áður hann lærði í tvö ár hjá Páli Ísólfssyni, sem einnig kynnti Árna fyrir þverflautuleik. Á fjórða áratuginum stundaði Árni nám við Tónlistarskóla Reykjavíkur, lék í hljómsveitum og fór að geta sér gott nafn sem píanóleikari og tónskáld. Litla svítan fyrir strokhljómsveit var frumflutt 1940 og hlaut strax góðar viðtökur.
Á árunum 1944–1946 stundaði Árni þverflautunám við Royal Manchester College of Music ásamt námi í píanóleik og tónsmíðum. Eftir burtfararprófið sneri Árni aftur til Íslands og tók virkan þátt í íslensku tónlistarlífi samhliða því að sinna eigin tónsmíðum. Árið 1952 hlaut hann alvarlegan heilaskaða í líkamsárás og náði aldrei kröftum sínum að fullu eftir það. Hann hélt þó áfram að spila spila og semja, en kammer- og hljómsveitarverk á borð við Litlu svítuna urðu ekki fleiri eftir árásina.
Edvard Grieg (1843 - 1907) var norskt tónskáld og píanóleikari. Meðal þekktustu verka hans er tónlistin við leikritið Pétur Gaut eftir Henrik Ibsen og píanókonsert í a-moll. Tónlist Griegs var mjög innblásin af norskum þjóðlögum, en Holbergs svíta, Op. 40, “í gömlum stíl” er í fimm þáttum sem byggjast á átjándu aldar dansformum. Svítan var skrifuð árið 1884 fyrir píanó til að fagna 200 ára fæðingarafmæli dansk-norska húmanistaleikskáldsins Ludvig Holberg, en Grieg aðlagaði hana fyrir strengjasveit ári siðar. Svítan er eitt elsta dæmið um nýklassík, þegar tónskáld semja tónlist eftir sniðum og formum liðins tíma, en með sínum stílbrögðum og áferðum.
Dag Wirén (1905 - 1986) var sænskt tónskald. Hann bjó stærsta hluta æfi sinnar á Stokkhólmi, en árin 1931 - 34 lærði hann tónsmíðar í París þar sem hann drakk í sig áhrif Stravinskys, Prokofievs og Les Six tónskáldanna.
Serenaða fyrir strengi var samin 1937 og er einnig í nýklassískum stíl, í klassísku serenöðu formi en með hljómum og rytmum sem mörg tilheyra stefnunum og straumunum frá París. Hann sagði einu sinni að löngun sín væri að semja aðgengilega en framsækna nútíma tónlist og heyrist það glögglega hér.
Efnisskrá
Carl Nielsen (1865 - 1931)
Lítil Svíta
fyrir strengjasveit, Op.1
Präludium | Intermezzo | Finale
~
Árni Björnsson (1905 - 1995)
Lítil Svíta
fyrir strengjasveit, Op.12
Pastorale | Scherzettino | Nocturne | Rondo
~
Edvard Grieg (1843 - 1907)
Holbergs Svíta
fyrir strengjasveit, Op.40
Präludium | Sarabande | Gavotte | Air | Rigaudon
~
Dag Wirén (1905 - 1986)
Serenaða
fyrir strengjasveit, Op.11
Preludium | Andante espressivo | Scherzo | Marcia
Flytjendur
Strengjasveitin Spiccato var stofnuð árið 2012. Strengjasveitin er hugsuð sem vettvangur til að fagna fegurð strengjatónlistar á Höfuðborgarsvæðinu. Nálgun sveitarinnar við æfingar endurspeglar skuldbindingu við samstillt, opið og frjálst tónlistarumhverfi.
Spiccato leggur áherslu á lýðræðislegt æfingaumhverfi og telur að framlag hvers og eins skipti máli. Þess vegna er hljóðfæraleikurunum gefið færi á að tjá skoðanir sínar og taka þátt í sameiginlegri sýn hópsins. Einnig skipta hljóðfæraleikarar með sér einleikshlutverkum. Þetta skapar umhverfi þar sem hugmyndir fá að blómstra og tónlistin nýtur góðs af fjölbreyttum sjónarhornum innan sveitarinnar.
Spiccato leggur sig fram við að rækta bæði hæfileika einstakra meðlima og vinnur að fagmennsku og gæðum strengjasamspils og skapar þannig kraftmikla og gefandi tónlistarupplifun fyrir alla.