Back to All Events

Frá jarðneskum nautnum til himneskrar dýrðar

  • Breiðholtskirkja 5 Þangbakki Reykjavík, Reykjavíkurborg, 109 Iceland (map)

Sýn endurreisnarinnar á ástina

Ástin í öllum sínum gervum átti sér sterkan og miðlægan sess í vinsælum söngvum endurreisnarinnar ekkert síður en í dægurtónlist samtímans. Efnisskrá tónleikanna vindur sig gegnum “dægurtónlist” endurreisnarinnar og hinar marghliða birtingarmyndir ástarinnar sem þar er að finna.

Myndum verður brugðið upp af kátum fjárhirðum og hjarðmeyjum í hinum heillandi fögru en þó sláandi klúru söngvum 'Frais et Gaillard' og 'Un Gai Berger' og vart duldar hugleiðingar um jarðneskar nautnir svífa yfir vötnum í 'Anchor che col partire' og 'Come Again'. Krafturinn sem býr í augnaráði elskhugans er ríkjandi í 'Susanne un jour' og 'O Felici Occhi Miei', en 'Doulce Memoire' og 'Mille Regrets' tjá sársaukann í missi og eftirsjá. Hin upphafna og fullkomna ást í 'De Tous Biens Plaine' er svo af allt öðrum meiði.

Þessir ástarsöngvar endurreisnarinnar voru svo vel þekktir að þeir hafa varðveist í ótal ólíkum útgáfum. Á tónleikunum hljóma hljóðfæraútgáfur sem skarta fjölmörgum skreytingum eða svokölluðum “dímínúsjónum.” Líkt og djasstónlistarmenn spinna í kringum djassstandarda ófu tónskáld endurreisnarinnar flókinn spunavef um vinsæla ástarsöngva síns tíma, eins og heyra má í efnisskránni okkar. Tónskáldin, sem gátu reitt sig á það að hlustandinn þekkti ástarsöguna sem byggi að baki, drógu oft fram ákveðin orð með tónmálun og ýttu undir ákveðnar skírskotanir í textanum með skreytingum sínum og gæddu þannig mismunandi birtingarmyndir ástarinnar lífi.

Efnisskrá

Jacobus Clemens non Papa (1510 - 1555/56)

Frais et Gaillard

dímínúsjónir eftir Giovanni Bassano (u.þ.b. 1561 - 1617)

John Dowland (u.þ.b. 1563 - 1626)

Come again

dímínúsjónir eftir Jacob van Eyck (1589/90 - 1657)

Claudin de Sermisy (u.þ.b. 1490 - 1562)

Jouissance vous donnerey



Cipriano de Rore (1515/16 - 1555)

Io canterei d'amor

Non che il duol

dímínúsjónir eftir Girolamo dalla Casa (u.þ.b. 1543 - 1601)

Thomas Crecquillon (u.þ.b. 1505-1557)

Un gai bergier

dímínúsjónir eftir Giovanni Bassano

**********

Hayne van Ghizeghem (u.þ.b. 1445-1476/97)
Pieter de Bourdon (1450-1483+)
Alexander Agricola (1445/6-1505)

De tous biens plaine



Filippo Azzaiolo (uppi 1557)

Chi passa per la Strada



Alonso Mudarra (u.þ.b. 1510-1580)

Isabel perdiste la tua faxa



Orlando di Lasso (u.þ.b. 1532 - 1594)

Susanne un jour

dímínúsjónir eftir Giovanni Bassano

Pierre Attignant (1494 - 1552)

Basse danse la Magdalena



Pierre Sandrin (u.þ.b. 1490 - 1561)

Doulce memoire

**********

Francesco Spinacino (uppi 1507)

Ricercare 25



Cipriano de Rore

Ancor che col partire

dímínúsjónir eftir Giovanni Bassano og Riccardo Rognoni (u.þ.b. 1550 - u.þ.b. 1620)

Jacques Arcadelt (1507 - 1568)

O felici occhi miei

dímínúsjónir eftir Diego Ortiz (u.þ.b. 1510 - u.þ.b. 1576)

Josquin des Pres (u.þ.b. 1450/55 - 1521)

La cancion del Emperador (Mille Regretz)

dímínúsjónir eftir Luis de Narváez (1500 - 1552)

John Dowland

Flow my tears

dímínúsjónir eftir J. van Eyck

Duo Passaggi

Tvíeykið Passaggi er nýtt samstarf Clare Beesley endurreisnarþverflautuleikara og Punto Bawono, sem leikur á endurreisnarlútu og vihuelu. Á 17. öld var algengt að tónlistarmenn tækju vinsæl sönglög og byggju til úr þeim nýjar tónsmíðar, þar sem þeir fylltu upp í lagnóturnar með alls kyns skrauti úr styttri nótnagildum. Þessi skreytingatækni nefnist “passaggi”, en þaðan kemur nafn tvíeykisins.

Duo Passaggi gerir sér far um að rannsaka og gera tilraunir með fyrirbærið retórík í tónlist, þar sem retórísk tjáning kemst til skila gegnum fínleg blæbrigði í hljóðstyrk og lit. Raddir hljóðfæranna fléttast saman með ryþmískum sveigjanleika og krafti, en á þann hátt svipar þeim til dansara sem mynda eina heild og eru þó samtímis sjálfstæðir einstaklingar.

Clare Beesley - endurreisnarþverflauta

Clare hlaut meistaragráðu með sérhæfingu í endurreisnarþverflautuleik frá Konunglega konservatoríinu í Haag árið 2006. Hún er virk sem sjálfstætt starfandi flautuleikari, fyrst og fremst á sviði upprunaflutnings, og hefur komið fram með Amsterdam Baroque Orchestra, Il Pomodoro, Barokksolistene, Das Kleine Konzert og Combattimento. Hún er reglulegur meðlimur í hljómsveitunum Concerto Amsterdam, Accademia Amsterdam og Alexander Consort. Auk þess leiðir hún endurreisnarflautukonsortinn Catch As Catch Can og Beesley-flautukvartettinn, flautu- og strengjahóp sem sérhæfir sig í tónlist frá síðari hluta 18. aldar. Clare hefur kennt á árlega upprunaflutningsnámskeiðinu Baroque Week í Bretlandi í rúmlega tíu ár. Út hafa komið tónlistarfræðigreinar eftir hana, auk þess sem hún stundar doktorsnám við Háskólann í Utrecht.

Punto Bawono - Lúta & Vihuela

Punto lauk meistaranámi með sérhæfingu í basso continuo og barokklútu undir handleiðslu Paul Beier við Civica Scuola di Musica Claudio Abbado í Mílanó á Ítalíu. Fyrir það nam hann leik á teorbu, lútu og barokkgítar hjá Mike Fentross og Joachim Held við Konunglega konservatoríið í Haag. Punto einskorðar sig ekki við upprunaflutning. Meðal annars hefur hann unnið með tónskáldinu og sellóleikaranum Alfian Emir Adytia að gerð og flutningi tónlistar sem er innblásin af Keroncong. Punto hefur einnig komið fram með brúðuleikhúshópnum Vox Muziektheater, sem hefur aðsetur í Rotterdam. Punto kemur reglulega fram sem einleikari, meðleikari í lútusönglögum og basso continuo-leikari með hinum ýmsum tónlistarmönnum og -hópum í Hollandi og annars staðar í Evrópu og má þar nefna Nordic Pulse, Fuse Ensemble og Nederland Blazers Ensemble.

Previous
Previous
June 13

Franck, Schumann, Gunnar og Bach

Next
Next
August 22

Dætur Evu - systur Maríu