Þetta eru fyrstu tónleikarnir í 15:15 tónleikasyrpunni sem haldnir verða í Fella- og Hólakirkju, en flytjendur eru Katrin Heymann þverflautuleikari, Össur Ingi Jónsson óbóleikari og Jón Sigurðsson píanóleikari.
Efnisskrá
César Franck
Fiðlusónata í A-dúr (1886)
úts. fyrir flautu og píanó eftir Pierre Rampal
Robert Schumann
3 Rómönsur Op. 94 (1849) fyrir óbó og píanó
Gunnar Haraldsson
Spíra (2025) fyrir altþverflautu og englahorn
Johann Sebastian Bach
Tríósónata BWV 1039 (1736-41), fyrir tvær þverflautur og basso continuo
úts. fyrir flautu, óbó og píanó af flytjendum
Um verkin
Fiðlusónata César Franck verður hér flutt í útsetningu Jean-Pierre Rampal fyrir þverflautu og píanó, en fiðlusónatan var saminn sem brúðkaupsgjöf handa fiðluleikaranum Eugène Ysaÿe og er eitt þekktasta verk sinnar tegundar, og eitt þekktasta verk César Francks. Verkið er úthugsuð listasmíð, þar sem stefin úr fyrsta kaflanum eru notuð sem efniviður í hinum köflum sónötunnar. Tónlistin er stórbrotin, með háum svífandi línum sem njóta sín vel á flautunni, ásamt ótal bitastæðum einleiksköflum fyrir píanóið.
Rómönsur Robert Schumann fyrir óbó og píanó voru samdar sem jólagjöf handa Clöru Schumann. Þær eru vafalaust þekktasta kammerverk fyrir óbó frá þessum tíma, en tónlistin eru angurvær og íhugul, og fer tónblæ óbósins afar vel.
Spíra eftir Gunnar Haraldsson var frumflutt á WindWorks hátíðinni á Akureyri síðasta sumar, en heyrist hér í fyrsta skipti á höfuðborgarsvæðinu. Verkið er fyrir englahorn og altþverflautu og kannar hina dökku hljómblæi hljóðfæranna.
Tónleikunum lýkur með samspili allra hljóðfæranna í tríósónötu BWV 1039 eftir Johann Sebastian Bach. Hún var upprunalega samin fyrir tvær þverflautur og basso continuo en þá flutt á Café Zimmerman í Leipzig, en tónlistin smellpassar inn í kaffihúsastemmingu 18. aldar og vel hægt að ímynda sér að einhver hafi tekið snúning á sónötunni á óbói, sem var algengt hljóðfæri á þeim tíma.
Um flytjendur
Katrin Heymann stundaði framhaldsnám í flautuleik í Detmold, Þýskalandi, og síðar í Berlín. Eftir útskrift vann hún sem flautuleikari og kennari í Berlín, síðan í Brighton á Suður-Englandi og nú undanfarin ár á Íslandi. Katrin hefur spilað með ýmsum hljómsveitum og kammerhópum, er t.a.m. stofnmeðlimur Sussex flutes flautukvintettsins. Katrin gegndi stöðu 1. flautuleikara í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands um árabill og kemur reglulega fram á kammertónleikum bæði í Reykjavík og Brighton.
Össur Ingi Jónsson nam óbóleik á Íslandi við Tónlistarskóla Kópavogs og Reykjavíkur. 2012 útskrifaðist hann frá Utrechts Conservatorium og hefur síðan verið virkur í íslensku tónlistarlífi og spilað í ýmsum hljómsveitarverkefnum, t.a.m. með Elju og Sinfóníuhljómsveitum Íslands, Norðurlands og Suðurlands. Undanfarin ár hefur Össur komið reglulega fram á kammertónleikum í Reykjavík og Brighton.
Jón Sigurðsson stundaði framhaldsnám í píanóleik fyrst í Þýskalandi og svo í Bandaríkjunum, þar sem hann lauk meistaragráðu. Á undanförnum árum hefur hann komið víða fram bæði sem einleikari og sem meðleikari með fjölmörgum söngvurum og hljóðfæraleikurum. Út hafa komið þrír geisladiskar með einleiksverkum fyrir píanó þar sem Jón flytur m.a. verk eftir Scriabin, Barber, Strauss, Schumann og Mozart.