Flutt verða verk fyrir þverflautur og fagott eftir nútímatónskáldin Christopher Theofanidis, Edoardo Dinelli, Maria Radeschi og Kolbein Bjarnason ásamt klassískum verkum eftir Bozza og Cambini.
Flytjendur
Pamela de Sensi þverflautuleikari
Petrea Óskarsdóttir þverflautuleikari
Páll Szabo fagottleikari
Efnisskrá
Edoardo Dinelli (1974)
Völuspá, fyrir 2 flautur og fagott
I. Creation
III. Askr ed Embla
Eugéne Bozza (1905-1991)
Sonatine, fyrir flautu og fagott:
I. Allegro
II. Andantino
III. Vif
Kolbeinn Bjarnason (1958)
Litbrigði fyrir einleiks pikkoló
~ Stutt hlé ~
Maria Radeschi (1954)
Il peso del silenzio ( Þyngd þagnarinnar), fyrir einleiksflautu
Christopher Theofanidis (1967)
Kaoru, fyrir 2 flautur
I. darting, restless
III. Joyous
Giuseppe Cambini (1746-1825)
Trio Concertante op. 45
I. Allegro affettuoso
II. Presto
Almennt miðaverð er 4000 kr. en 3000 kr. fyrir námsmenn, aldraða og öryrkja. Frítt er fyrir unglinga og börn í fylgd með fullorðnum
Um flytjendur
Pamela De Sensi tók einleikarapróf á flautu frá Conservatorio G. Perosi á Ítalíu 1998, lauk "Perfection Flutistic" frá "Accademia di Musica Fiesole" í Florens árið 2000 og útskrifaðist frá "Conservatorio Superiore di S. Cecilia" í Róm árið 2002 með meistaragráðu með hæstu einkunn í kammertónlist.
Einnig hefur hún sótt tíma hjá heimskunnum flautuleikurum s.s. C. Klemm, M.Ziegler, F. Reengli, T. Wye, M. Larrieu og J. Galway. Pamela hefur komið fram á tónleikum víðs vegar bæði sem einleikari sem og í kammertónlist og má þar nefna Frakklandi, Spáni, Englandi, Kasakstan, Mexíkó, Íslandi, Færeyjum, Finnlandi, Kína, Japan, í Bandaríkjunum og víðsvegar á Ítalíu, ásamt því að koma reglulega fram hér á Íslandi þar sem hún hefur búið frá árinu 2003, m.a. Á tónlistarhátíðunum Myrkum músíkdögum, Tibra í Salnum, Norrænum músíkdögum, Sumartónleikum í Skálholtskirkju, Menningarnótt, Tectonics, 15:15 tónleikaröðinni og Listahátið. Árið 2009 var henni boðið að halda tónleika á alþjóðlegri ráðstefnu The National Flute Association í New York og International Flute Festival Flautissimo í Róm árið 2010,2012, 2015 International Low Flute Festival í Washington 2018 og í Chicago 2024, það sem hún flutti íslenska tónlist við góðan orðstír. Pamela hefur spilað á CD Bjarkar UTOPIA og á CD Báru Gísladóttir VIDDIR.
Petrea Óskarsdóttir lauk burtfararprófi í flautuleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1989. Í framhaldinu lá leiðin til Frakklands þar sem hún stundaði framhaldsnám við Conservatoire National de Region í Versölum.
Eftir að Petrea flutti aftur heim, haustið 1993, hefur hún verið virkur þátttakandi í tónlistarlífinu og kemur oft fram á tónleikum bæði sem einleikari og í ýmiskonar kammertónlist hérlendis sem erlendis. Hún er einn af þrem flautuleikurum Aulos Flute Ensemble, en þær hafa m.a. komið fram á Myrkum músíkdögum, Sumartónleikum í Skálholti, farið í tónleikaferð til Færeyja, Grænlands og Bandaríkjanna auk þess að standa fyrir Windworks hátíðinni á suður- og norðurlandi undanfarin ár. Petrea er einnig fastur meðlimur í Íslenska flautukórnum.
Petrea hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frá því hún flutti til Akureyrar vorið 2002, lengst af sem leiðandi flautuleikari.
Í janúar síðastliðnum kom út geisladiskurinn Litbrigði þar sem Petrea leikur tónlist fyrir einleiksflautur, meðal annars verk sérstaklega samin fyrir hana.
Petrea hefur alið upp heila kynslóð flautuleikara eftir áratuga starf í mörgum af stærstu tónlistarskólum landsins. Hún kennir nú við Tónlistarskólann á Akureyri.
Páll Barna Szabó er fæddur í Komló í Ungverjalandi.
Hann lærði í Tónmennta-síðan í Tónlistarkennaraháskóla í Pécs fyrst undir handleiðslu Dr. Ágnes Herpay og síðar í háskólanum Nándor Zseni.
Úr síðarnefndum skóla útskrifaðist hann með tréblásarakennaraprófi árið 1993 síðan hélt hann áfram til Franz Liszt Tónlistarakademíunnar í Búdapest og þar lauk hann námi með fagotteinleikaraprófi undir handleiðslu Gábor Janota.
Frá árinu 1990-96 starfaði hann í sinfóníuhljómsvet borgarinnar Pécs sem fagottleikari.
Árið 1996 flutti hann til Íslands og hóf störf í Skagafirði sem tónlistarskólakennari og undirleikari.
Árið 2009 eftir tveggja ára dvöl í Austur-Húnavatnssýslu hélt hann áfram til Dalvíkur og þar starfar hann sem tónlistarskólakennari og síðan í fyrra einnig í hlutastarfi sem kennari og undirleikari við Tónlistarskóla Akureyrar.
Frá árinu 1996-2017 spilaði hann í Sinfóniuhljómsveit Norðurlands sem fagottleikari.
Árið 2021 lauk hann kantorsnámi við Tónskóla Þjóðkirkjunnar undir handleiðslu Eyþórs Inga Jónssonar og starfaði sem organisti við Dalvíkurkirkju á árunum 2014-2023.
Hann var kórstjóri Sölku Kvennakórs frá árinu 2012-18,kórstjóri Karlakórs Dalvíkur milli 2013-17,og Kirkjukórsins Dalvíkursóknar á organistaárunum.
Hann spilar í Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Hljómsveit Akureyrar, og hefur tekið virkan þátt í tónlistarhátíðinni Windworks síðastliðin 2 ár.