Back to All Events

Debussy og Enescu

  • Neskirkja Hagatorg Reykjavík, Reykjavíkurborg, 107 Iceland (map)

Flytjendur

Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari
Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari

Efnisskrá

Claude Debussy: Sónata fyrir fiðlu og píanó í g-moll

  1. Allegro vivo

  2. Intermède: Fantasque et léger

  3. Finale: Très animé

George Enescu: Sónata no. 3 fyrir píanó og fiðlu í a-moll

  1. Moderato malinconico

  2. Andante sostenuto e misterioso

  3. Allegro con brio, ma non troppo mosso


Um tónleikana

Þessi efnisskrá varpar ljósi á tvær ólíkar en samrýmanlegar raddir tónlistarsögunnar: annars vegar litríkan og tilraunakenndan hljóðheim Debussy og hins vegar dramatíska og þjóðlagatengda rödd Enescu. Bæði tónskáld sköpuðu sér alveg nýjan hljóðheim með persónulegum stíl sem þau þróuðu og það er í því samhengi sem okkur finnst þessar sónötur marka mikilvæg skil í tónlistarsögunni. 

Sónata Debussy fyrir fiðlu og píanó er síðasta verk þessa mikla tónskálds, skrifað af dauðvona manni á tímum stríðs, en er þrátt fyrir það uppfull af lífi og sameinar allt það besta í tónlist hans, elegans og blæbrigði í “litavali”, rytmískan fjölbreytileika, lifandi samtal milli hljóðfæra og frelsi og óvæntar vendingar í þó mjög svo strúktúreraðri tónlist. Þriðja sónata Enescu fyrir fiðlu og píanó, í rúmenskum þjóðlagaanda, er ótrúlegt meistaraverk þar sem þjóðlagatónlist sameinast klassískum hefðum á flæðandi og áreynslulausan hátt. Tónlistin vellur áfram líkt og hún væri spunnin af fingrum fram en er þrátt fyrir það skrifuð af mikilli nákvæmni, hver einasta styrkleikabreyting, hvert tákn og orð í nótunum þaulhugsað. Úr verður klassískur þjóðlagagaldur sem heldur manni föngnum frá dreymandi upphafinu til fjörugs lokadansins. 


Um flytjendur

Sólveig og Þóra kynntust við nám í Sviss og hafa spilað mikið saman síðustu ár, mest þó með píanókvartettinum sínum, Neglu. Árið 2024 fluttu þær sónötur fyrir píanó og fiðlu eftir Beethoven og Brahms í tónleikaröðinni Klassík í Salnum og á þessum næstu sónötutónleikum þeirra ákváðu þær að kanna nýjar slóðir.

Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari fluttist til Íslands árið 2021 eftir tíu ár við nám og störf í Sviss. Síðan þá hefur hún spilað á mörgum helstu tónleikaröðum og hátíðum landsins, m.a. í tónleikaröðunum Tíbrá, tónleikaröð Kammermúsíkklúbbsins, Velkomin heim í Hörpu, Klassík í Salnum, á Sígildum sunnudögum og á tónlistarhátíðunum Reykholtshátíð, Seiglu, Þjóðlagahátíð og Klassík á eyrinni. Hún er meðlimur píanókvartettsins Neglu, sem var stofnaður árið 2023 og hefur vakið mikla athygli fyrir vandaðan flutning og spennandi efnisskrár. Hún hefur einnig brennandi áhuga á ljóðameðleik og hefur leikið á fjölda ljóðatónleika síðustu ár, oft með söngvurum Kammeróperunnar en einnig með Hönnu Dóru Sturludóttur, Maríu Sól Ingólfsdóttur, Hildigunni Einarsdóttur og fleirum. Hún hefur verið meðleikari á masterklassnámskeiðum fyrir söngvara og strengjaleikara hérlendis og erlendis og starfar sem meðleikari við Menntaskóla í tónlist og Söngskólann í Reykjavík.
Þóra hóf tónlistarnám sitt á Akureyri hjá Dýrleifu Bjarnadóttur og lærði síðar hjá Peter Máté við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk meistaragráðu í píanókennslu og píanóleik með kammertónlist sem aukagrein frá tónlistarháskólanum í Luzern árið 2017. Helstu kennarar hennar þar voru Yvonne Lang og Edward Rushton. Árið 2020 lauk hún annarri meistaragráðu í kammertónlist og meðleik frá listaháskólanum í Zürich, þar sem aðalkennari hennar var píanóleikarinn Friedemann Rieger. Hún sótti þar einnig reglulega tíma í ljóðameðleik hjá m.a. Christoph Berner og kammertónlist hjá Eckart Heiligers og fleirum. Hún hefur sótt masterklassnámskeið hjá m.a. Thomas Hampson, Simon Lepper, Joseph Breinl og Ewa Kupiec.

Sólveig Steinþórsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1995 og hóf fiðlunám þriggja ára gömul við Allegro Suzukitónlistarskólann undir handleiðslu Lilju Hjaltadóttur og lærði síðar hjá Guðnýju Guðmundsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk bakkalárprófi frá Listaháskólanum í Berlín undir handleiðslu Eriku Geldsetzer árið 2019 og meistaragráðu frá Listaháskólanum í Zürich árið 2021 þar sem kennari hennar var Rudolf Koelman, hvort tveggja með hæstu einkunn.
Hún hefur leikið einleiks- og kammertónlist á Íslandi, Þýskalandi, Sviss og Ítalíu og komið fram á ýmsum hátíðum, þar á meðal Bodensee Festival, Festival alte Musik Zürich og Tónlistarhátíð unga fólksins, og á tónleikaröðunum Sígildir sunnudagar í Hörpu, Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni og Tíbrá í Salnum í Kópavogi.
Hún hefur komið fram sem einleikari með hljómsveit á Íslandi, Sviss og á Ítalíu og leikið m.a. fiðlukonserta eftir Tschaikowsky, Sibelius, Saint-Saëns og Bach og konsertstykki eftir Chausson, Sarasate og Saint-Saëns.
Hún hefur einnig spilað sem barokkfiðluleikari með ýmsum hópum m.a. Barokkbandinu Brák, Zürcher Barockorchester, Akademie für alte Musik Berlin og J. S. Bach Stiftung St. Gallen, og komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum t.d. Bachfest Leipzig, Reykjavík Early Music Festival, Bachfest Riga og Sumartónleikum í Skálholti. Einnig hefur hún verið meðlimur í Kammersveitinni Elju frá því að hún var stofnuð árið 2017 og m.a. leitt kammersinfóníur eftir Stravinsky og Schönberg.
Sólveig er fiðluleikari Píanókvartettsins Neglu sem var stofnaður í janúar 2023. Sólveig hefur kennt á Alþjóðlegu tónlistarakademíunni í Hörpu. Í júní 2023 gaf hollenska útgáfufyrirtækið Challenge Classics út upptöku á flutningi hennar á sex einleikssónötum Eugenes Ysaÿes sem tekin var upp í Winterthur í Sviss í október 2022. Sólveig leikur á fiðlu úr smiðju Hans Jóhannssonar, frá árinu 2011.

Previous
Previous
March 28

Dúettsins skuggar [FRESTAÐ]

Next
Next
May 16

Lífsins lög